Ný útgáfa af hinum vinsælu Ticam gönguskóm, Ticam II er nú enn léttari en forveri sinn og með skálm sem er betur sniðin að ökklanum. GORE-TEX vatnsheld filma með góðri öndun ásamt climate control innsóla tryggja aukin þægindi.
Frábær hönnun með lækkaða þyngd og auðvelda og þægilega notkun með nýju ökklasniði og LOWA Flex® reimakerfi sem leyfir reimunum að renna auðveldlega í gegnum málmlykkjurnar sem sitja á lausum leðurflipum, og dregur þetta úr heildarþrýsting á fæturna. Í botninum á skónnum er sérstakt Balance Comfort snið sem veitir mikilvægan stuðning þegar maður ber þungan farm. Gúmmífilma meðfram innri hlið skónna ver leðrið í krefjandi landslagi, til dæmis þegar gengið er á hrauni eða í grýttum fjörum.
- Litir: Brúnn/olive
- CORDURA leður
- Vatnsheld GORE-TEX filma sem andar
- C4 Tunga
- VIBRAM® AppTrail sóli
- FLEX® LACING og FLEXFIT
- Málmhringur á tungu fyrir x-reimun
- Climate Control innsóli
- Parið vegur 1640 grömm